föstudagur, febrúar 23, 2007

Gleðilega helgi :)

Veit að mín verður alla vega gleðileg :) ekki út af því að ég þarf að gera tvær skýrslur (sem er nú reyndar baa nokkuð stuð) heldur vegna þess að e´g er laus við félaga minn úr tilraununum :D
Jább, fékk s.s. nóg í dag (í hundraðasta skiptið reyndar) og sagði honum (þó nokkuð hðátt og með einhverju látbragði) að svona attitjúd fýlaði ég ekki, strunsaði svo fram og tilkynnti kennaranum það. Hann tók því kannski ekki af fullri alvöru en svo eftir tiraunina (þegar hjartað sló örlítið hægar) spurði ég hann hvort það væri nokkuð möguleiki að skipta um hóp og jú, það var bara alveg möguleiki :) Hann sagði meira að segja að hann skyldi mig vel OG að við værum kannski ekki alveg á sama leveli skólalega séð. Þessi kennari er orðinn alla vega jafnháttskrifaður og sjúkraþjálfarinn og ef hann heldur áfram á þessari braut á hann eftir að stinga hann af :)
Já, ég var bara no0kkuð ánægð þegar ég rölti svo í ræktina. Þar hljóp ég 7 km og gerði mínar æfingar á meðan ég hugsaði í gegnum heilu básúnustykkin (með öndunum styrkleikum, víbradoi og öllu...til að drepa tímann sko :) og reiknaði allt mögulegt (hversu langt ég myndi hlaup ef ég héldi eþssum meðalhraða í ákveðið langan tíma, hver meðalhraðinn hefði verið fyrst ég hljóp 7 km á 45 mínútum, hveru mörgum kalóríum ég brenndi miðað við meðalhraða og lengd o.s.frv. ... líka til að drepa tímann)
Fínasta heilaleikfimi það :)
Niðurstaðan er sú, að ég brenndi eiginelga akkúrat sælgætismagninu sem ég hakkaði í mig í gær á meðan ég horfði á sjónvarpsþáttin "þú ert það sem þú borðar".
Í gær var ég súkkulaði og lakrís en í dag er ég ís og rósaraldinsúpa :)

Góða helgi aftur :)

Já! Og hópurinn sem ég fékk að skipta yfir í gerir tilraunirnar 2 sem ég á eftir á mánudag og fimmtudag og þá er ég búin!! S.s. næstum viku fyrr :) Þar að auki lenti ég í hóp með strák semég hef verið með í fleir kúrsum og er bara þokkalega skemmtilegur... af svía að vera alltso...

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hæ hó,
greinilega góð helgi að byrja hjá þér í alla staði:) Flott að vera laus við félagann!
Mig langar líka að vera súkkulaði og lakkrís núna;) en ætla ekki að leyfa mér það þar sem það er vigtun í ræktinni í fyrramálið og frekar skammarlegt ef vigtin hefur farið upp í stað niður... svo ætli ég verði ekki bara gulrót í staðinn...

23 febrúar, 2007 23:06  

Skrifa ummæli

<< Home