laugardagur, mars 18, 2006

Og hvað er ég nú búin að koma mér í?

Ekki fyrr lent en og ég er búin að lofa upp í ermina á mér...
Ætla að spila með SÁ á tónleikum á morgun. Bara einn lítinn Rossini-forleik... mætti á æfingu áðan og var rétt 1. básúnua... þetta er alveg ógeðslega hátt! Svo núna er ég búin að vera að æfa og slíta mér út á Rossini-forleik fyrir tónleikana á morgun í staðn fyrir það sem ég ætti að vera að æfa... ég er snillingur!

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Mig minnti að þú hefðir ekki ætlað að gera þetta.... Merkilegt hvað annað fólk getur á auðveldan hátt snúið upp á nefið á því sem maður er búinn að ákveða svo að maður gerir einmitt eitthvað allt annað en planað var... Gangi þér vel að spila!

18 mars, 2006 18:34  

Skrifa ummæli

<< Home