þriðjudagur, mars 07, 2006

Hvenær kemur vor??

Rétt áður áður en ég sofnaði í gærkvöldi heyrði ég rigningarhljóð og varð yfir mig ánægð að loksins skildi nú vera farin að hlýna og að kannski væri hægt að draga fram hjólið aftur. Við þessar gleðifréttir vaknaði ég næginelga mikið til þess að fatta að þetta var bara uppþvottavélin okkar... bömmer... ég hélt samt í vonina þar til ég kíkti útum gluggann í morgun... ennþá allt skjannahvítt.
Kóræfing í kvöld og ég á að stjórna. Það er gaman að stjórna, þá ræð ég :)
Vissuð þið að Heyr himnasmiður er ekki í neinni takttegund? Aldrei hafði ég pælt í því fyrr en núna þegar ðég þykist ætla að stjórna :/ ég baða bara út örmunum, nokkurn vegin rytmískt, og vona það besta ;) ekki það að það lagið sé í reglulegum takti geri alltaf gæfuminunn... ég gleymi mér alltaf þegar ég er að stjórna og enda yfirleitt úr takti (meira að segja á kórstjórnarprófinu mínu)... ekki það að það skipti heldur öllu máli því það er sjaldnast nokkur ða horfa á mig... allir fastir í nótunum sínum :Þ
Ætla að fara að "elda". Það verður bara salat í kvöldmatinn og haldið ykkru nú, salat með gúrku ,tómötum
, salati, avokado, mozzarella, hnetum og... MANGÓ! Jonas er skeptískur en ég smakkaði svona um daginn og það var mjög gott.

5 Comments:

Blogger Guðrún said...

...og svo verð e´g á Íslandi í sumar þegar það verður POTTÞÉTT hlýrra í Svíþjóð... fúlt! Þrátt fyrir kuldan sé ég vélarís með heitri súkkulaðisósu í hyllingum...

08 mars, 2006 15:36  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ, var salatið gott?
Langar bara að spæla þig smá. Það er geggjað vorveður í dag og ég ætla að drífa mig í göngutúr með Evu á eftir:)

Við erum svo að fara á kóræfingu í kvöld, þá síðustu fyrir messu á sunnudaginn!!:( Shit vona að við hljómum alla vega betur en kirkjukórinn en það verður tæpt...

08 mars, 2006 16:51  
Anonymous Nafnlaus said...

Mmmm... Mig langar í svona salat :)
Heyrðu Sigrún, fór það alveg framhjá þér að það snjóaði í gær? Það sá ég út um gluggann á spítlanum! Það var að vísu svo langt þangað til ég leit næst út um glugga að ég hef ekki hugmynd um hvort e-ð festist á jörðinni...

08 mars, 2006 18:04  
Blogger Guðrún said...

Salatið var að sjálfsögðu big success... þrátt fyrir að ég hafi logið mozzarellan, hann var víst löngu búin en venjulegur ostur í staðinn bara. Og þetta með veðrið... æeg kem eftir tæpar tvær og þá vli ég mjög gjarnan sjá þessa vorblíðu með eigin augum og hanan nú!

08 mars, 2006 19:45  
Anonymous Nafnlaus said...

Bara alveg passlega mörg sýnist mér ;) Má allavega ekki vera minna!

09 mars, 2006 23:23  

Skrifa ummæli

<< Home