mánudagur, desember 11, 2006

Þessir mánudagar!

Ég er svo heppin að eiga aldrei að mæta í skólann fyrr en 10:15 á mánudögum. Síðustu 2 mánudaga hefur þetta hins vegar verið alveg hreint feykinógu snemmt! Ég er nefninlega svo mikið partýljón þessa dagana ;)
Nema hvað, síðustu 2 mánudaga hefur það krafist heilmikils viljastyrks að dröslast fram úr rúminuog út og hef ég verið kannski full sein. Þegfar ég kem út finn ég heins vegar ekki hjólið mitt! Í síðustu viku var það einfaldlega vegna þess að ég hafði skilið það eftir niðri við lestarstöð á föstudeginum og gleymt að ná í það á sunnudeginum eins og ég hafði lofasð sjálfri mér. Í morgun var það hins vegar líka horðið og ég er nokkurn vegin alveg viss um að hafga skilið það eftir hér fyrir utan... því hefur s.s. verið stolið :(
Mér er alveg greynilega ekki ætlað að mæta í þessa mánudagsfyrirlestra!

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

En óþolandi! Það er vont fólk sem stelur hjólum...

11 desember, 2006 11:33  
Anonymous Nafnlaus said...

ég er sko sammála því, vonandi gleymdirðu því bara einhvers staðar aftur, hefur komið fyrir mig.

11 desember, 2006 13:46  
Anonymous Nafnlaus said...

Arrg:( Ég hata þegar hjólinu manns er stolið, hef því miður lent nokkrum sinnum í því þegar ég bjó í Amsterdam!!
Var þetta ekki fína nýja hjólið þitt??

Brrr vona innilega að þú hafir bara "lagt" því einhvers staðar annars staðar og sért búin að finna það núna...
eða var þetta kannski bara léleg afsökun til að sleppa við mánudagsfyrirlesturinn??!!

13 desember, 2006 00:59  

Skrifa ummæli

<< Home