fimmtudagur, febrúar 14, 2008

Jahá

Ætli það sé ekki bara best að ég hætti að koma með yfirlýsingar um hvernig gengur með tilraunirnar, dagurinn í dag var nefninlega bara ljómandi skemmtilegur :)
En ef ég ætla ekki að tala um tilraunirnar hef ég svosem ekkert að segja... ég geri nákvæmlega ekkert annað þessa dagana... á morgun er ætlunin að gera sér dagamun og skella sér í bíó að sjá Svíní Todd :) Ég er meira að segja búin að panta miða (já, Svíþjóð!)
Og svo fer nú að styttast í skíðaferðina :)

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já ég á alveg eftir að læra þetta "panta tíma dæmi" hérna í Svíþjóð -sem hefur einmitt orðið til þess að við kötuhjúin förum bara ekki neitt. Er ennþá að vandræðast með að panta tíma hjá lækni - það er einmnitt búið að taka hálft ár... þetta kemmur kannski einhvern tímann með kalda vatninu ;)
Katrín

17 febrúar, 2008 16:14  
Blogger Guðrún said...

ég tek þig í tíma ;)

17 febrúar, 2008 16:20  

Skrifa ummæli

<< Home