mánudagur, janúar 21, 2008

rómó

Það er svo ferlega rómó lýsingin inni á gestaklósetti (já, maður þarf sko 2 klósett í 3 herbergja íbúð... alla vega í Svíþjóð) hjá okkur núna, 3 perur af 4 farnar. Einhvern veginn efast ég um að við gerum e-ð í því fyrr en sú fjórða ver :Þ
Það var ekki fallegt námskeiðsmatið sem ég gerði fyrir kúrsinn sem ég var í! En ég meinti sko hvert einasta orð, þetta var verst skipulagði kúrs sem ég hef tekið þátt í.
Var að byrja í nýjum kúrsi í dag og var örlítið stressuð í nafnakallinu því það var svo ótrúlega mikið af fólki þar sem ég nennti ómögulega að vera með í kúrsi. Sem betur fer voru þetta 4 mismunandi kúrsar og leiðindagaurarnir voru að sjálfsögðu að fara í leiðindakúrsana svo þetta slapp ;)
Líst bara ágætlega á kúrsinn og þá sem eru með mér í honum. Búin að ná mér í labb félaga og allt :)

1 Comments:

Blogger Ólöf said...

Ég man eftir einni íbúð sem við bjuggum í sem var með þremur baðherbergjum! Fyrir fimm manns :) Svíar eru svolítið skrítnir að þessu leyti...

23 janúar, 2008 15:23  

Skrifa ummæli

<< Home