miðvikudagur, júlí 11, 2007

Nýja íbúðin

Finnst ég varla vera búin að minnast á það en við er skoho búin að fá nýju íbúðina og erum á fullu í betrumbótum. Nokkrar myndir:
Eldhúsið. Ætlunin er að taka það í gegn... erum bara ekki búin að ákveða hvort við hendum öllu út, skiptum bara um framhlið á skápunum eða lökkum bara framhliðarnar og skiptum um haldföng. Ætlum að melta það í einhvern tíma þó það þýði að við verðum eldhúslaus í e-n tíma.
Annað af tveimur yndilsegum baðherbergjum :) Ég elska þau! Sérstaklega hitt með sturtunni, frábær sturta!
Sturtan góða... á hlið... verð að viðurkenna að þessi mynd er eiginlega algjörlega vonlaus!
Flottur veggur er það ekki? Vorum að pæla í að lakka hann bara og hafa eins og hann er... an þar sem þetta er gestaherbergið og ég er ekki viss um að mamma mín fýli vegginn, þá hefur hann verið sparslaður og er tilbúin fyrir málningu.
En Miss Marple var að byrja í sjónvarpinu og ég ætla að glápa og borða dæmköku með :)

2 Comments:

Blogger Sigrún Helga Lund said...

Takk fyrir myndirnar! Þetta verður algjört æði hjá ykkur :)

12 júlí, 2007 02:18  
Anonymous Nafnlaus said...

Sammála, þetta lítur vel út og verður rosa fínt þegar allt verður tilbúið. Ég á sko eftir að koma í heimsókn í þessa íbúð líka :)

12 júlí, 2007 10:21  

Skrifa ummæli

<< Home