laugardagur, nóvember 08, 2008

Partí!




Haldið að mér hafi ekki bara verið boðið í partí í kvöld, alvöru sænskt stúdentapartí. Ég fékk nett sjokk þegar ég opnaði fataskápinn minn og mundi að ég á bara settleg föt, engin megasvkvísupartíföt. Okkur Jonasi tókst þó í sameiningu að setja saman föt svo ég gæti villt á mér heimildum þetta kvöldið. Fyrir valinu urðu megapæjuunglingagallabuxurnar mínar sem ég er nýbúin að kaupa mér, gamall hippalegur bolur, megaskvísu leðurjakkinn minn (sem ég var sko löngubúin að gleyma) og skvísu kúrekastígvélin mín. Þið getið séð afraksturinn fyrir ofan og neðan ;)
Ég mætti í partíið á máturlegum tíma, hálftíma eftir boðaðan tíma eða kl 19:30. Þetta var s.s. partí hjá þremur strákum úr skólanum, ég er búin að vera að spila fótbolta með þeim í vor og aðeins í haust. Ég hafði nú ekki mikla trú á þessum elskum en það var bara svo huggulegt hjá þeim og svo voru þeir búnir að undirbúa þessar líka fínu snittur!
Sannir herramenn þar á ferð get ég sagt ykkur. Þrátt fyrir skvísuátfittið og snitturnar get ég ekki sagt að ég hafi átt mikið erindi þarna (nema náttúrulega til að borða snitturnar) svo ég borðaði snitturnar og átti í kurteisis samræðum við nokkra einstaklinga og sagðist svo þurfa að drífa mig í næsta partí (hahaha).
En ég sýndi þó alla vega smá lit!
...reyndar held ég að ég hafi sýnt meiri lit í einkamyndatökunni eftir að ég kom heim...

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þú hefur klárlega verið megapæja ;) Samt skrýtið þetta með fataskápana, hvert fóru eiginlega pæjufötin? Og af hverju eru þau svona lítil ef maður finnur þau einhvers staðar...

09 nóvember, 2008 00:01  
Anonymous Nafnlaus said...

Algjör pæja :) Skil alveg að kennarinn þinn hafi haldið að þú værir 23. Ég er sko ekkert öfundsjúk :-p

Þ.

09 nóvember, 2008 19:56  
Blogger Guðrún said...

Takk takk. Ég er sko þokkalega orðin nógu gömul til að taka því sem hrósi að fólk haldi að ég sé yngri en ég er ;)
...Hrefna, ég sko farið að djamma með þér, þú ert ekki búin að týna öllum pæjufötunum get ég sagt þér!

09 nóvember, 2008 23:30  
Blogger Sigrún Helga Lund said...

Megaskvísa! Þekkjandi þig, þá er samt lygin með næsta partý sjúklega fyndin :D

09 nóvember, 2008 23:45  

Skrifa ummæli

<< Home