miðvikudagur, október 22, 2008

Svolítið absúrd

Vaknaði um 3-leytið í nótt við að vinstri fóturinn minn hafði sofnað.
Drattast á fætur til að reyna að vekja fótinn, helst án þess að vekja mig. Sé að það er ljós frammi svo ég staulast draghölt og svefndrukkin fram til að slökkva ljósið. Þá situr Jonas inni í stofu og er að prjóna!
Það skal tekið fram að mig var ekki að dreyma.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Varstu þá með ofskynjanir? ;) Var hann að prjóna úlnliðshlífar?

23 október, 2008 00:29  
Blogger Sigrún Helga Lund said...

Hahahhaha!! Vá hvað ég sé þetta fyrir mér! Brá þér ekki? Ég hefði öskrað ;)

23 október, 2008 11:18  
Blogger Guðrún said...

Jamm úlnliðshlýfar voru það ;)
Öskra? Ég var nú svo gott sem sofandi, held ég hafi muldrað "ég hélt þú værir þarna" og bent á svefnherbergið og skakklappast til baka...

24 október, 2008 18:49  

Skrifa ummæli

<< Home