föstudagur, nóvember 16, 2007

Bókasöfn

Þessu nýja lærdómsæði mínu get ég að stórum hluta þakkað bókasöfnum bæjarins. Ég get setið sleitulaust í næstum 10 tíma með 20 mínútna hádegishléi og nokkrum pissupásum á Háskólabókasafninu meðan ég þarf að pína mig í svo mikið sem hálftíma hérna heima!
ég uppgvötvaði í raun ekki Háskólabókasafnið fyrr en á þessari önn og hef notað það óspart síðan þá, sérstaklega síðasta mánuðinn. Bókasafnið r í gömlu virðulegu tíbulsteinshúsi og það vex klifurplanta utaná því sem verður ótrúlega fallega dökkrauð á haustin. Það er nóg af lesaðstöðu í húsinu. Bókasafnið er á nokkrum hæðum en ég hef líti verið að flakka á milli hæða og er búin að afmarka mér svæði á neðstu hæðinni þar sem er lesstofa með u.þ.b. 40 básum. Þar hefur maður lítinn bás með lítilli hillu, gömlum slitnum stól, leslampa, innstungu fyrir tölvur og á endunum eru hankar þar sem maður getu hengt af sér. Alveg nákvæmlega það sem maður þarf og ekkert umfram. Í kjallaranum er lítil kaffistofa sem selur kaffi, te, kalda drykki, sætindi og heitan mat í hádeginu. Það er ótrúlega þægilegt að sitja þarna í hádeginu og borða heitan mat (maður getur valið milli 3 rétta; heimilsmatur, grænmetisréttur og "mikill matur fyrir lítinn pening" réttur og allt á innan við 60 krónur) í rólegheitum, það er svo miklu afslappaðri stemning þarna heldur en t.d. í næsta húsi þar sem málvísindadeildin er með hipp og kúl matsölu.
Helsti galli bókasafnsins er hins vegar að andrúmsloftið er vöðvabólguvaldandi! Fyrir utan það að ég gleymi mér algjörlega í lestri, þá eru stólarnir ekki mjög þægilegir (þó ekki svo slæmir miðað við aldur og fyrri störf) og það sem er verst er hversu ótrúlega kalt er þarna inni. Ég er í ullarsokkum, flíspeysu og með trefil. Eftir hádegi fæ ég mér svo te, ekki til að drekka, heldur til að halda á til að reyna að fá yl í útlimi og höfuð (já, ég ég legg bollann upp að höfðinu á mér svo að ég missi nú ekki nefið). Bókin í kúrsinum sem ég byrjaði í í síðustu viku hefur verið uppseld í Lundi síðan kúrsinn byrjaði svo ég hef þurft að sitja á bókasafni og lesa. Því miður er Háskólabókasafnið hætt að kaupa inn allar skólabækur, nú kaupir það bara allar sænskar bækur sem eru gefnar út. Þess vegna þurfti ég að fara á bókasafn deildarinnar sem kúrsinn minn er kenndur í. Það bókasafn er í Vårdvetenskapliga huset. Þangað hafði ég aldrei komið og varð ekki lítið ánægð þegar ég sá að það var í ekki nema 5 mínútna fjarlægð heiman frá mér. Bókasafnið er mjög flott og Kaffiterían þar er æðisleg! Stór en með mjög góðum mat og hlýlegu umhverfi.
Á bókasafninu getur maður valið á milli þess að stija í básum eins og á aðalbókasafninu, í hægindastólum sem vísa út að risastórum glugga inn í garð, eða við svokölluð hópvinnuborð þar sem eru þæginlegir skrifborðsstólar. Það besta er kannski að hitastigið er vel yfir frostmarki, ég þarf ekki einu sinni að vera í flíspeysunni minni þarna inni!
Ég kom mér vel fyrir í svotilgerðum lesbás sem leit alveg eins út og á bókasafninu "mínu". ég var ekki búin að sitja þar lengi þegar ballið byrjar. Allt í kring um mið situr fólk sem er greinilega að lesa sama kúrsinn og er í raun bara að læra saman. Þau tala hátt á milli básanna, spjalla og hlægja og skemmta sér konunglega. Inn á milli eru þau hljóð og einbeita sér að lesttrinum með Ipodinn í botni og ég fæ að njóta með...
Algjörlga ómögulegt að einbeita sér í þessum hávaða! Já, fyrst og fremst út af hávaðanum, svo bætist við frústerasjónin yfir að þau skuli vera að tala svona hátt á hljóða lessvæðinu. Svo byrjar maður að hugsa af hverju í ósköpunum þau sitji ekki á hópavinnusvæðinu (sem er tómt!) og þá byrjar maður í huganum að æfa ræðuna sem maður ætlar að halda yfir þeim. Svo eyðir maður smá tíma í viðbót í að reyna að sannfæra sjálfan sig um að standa nú upp og halda ræðuna en tekst ekki. Þá verður maður frústreraður yfir því að maður skuli ekki geta druslast til að biðja þau um eins sjálfsagðan hlut eins og að þegja á lessvæðinu og þá er maður búinn að lesa heilan kafla án þess að hafa hugmynd um hvað hann fjallar...
ég var alla vega himinlifandi í gær þegar ég fékk sms um að bókin mín væri komin! Eins frábært og það hefði verið að geta lesið svona nálægt heima og jafnvel án vöðvabólgu, þá held ég að geðheilsan sé mikilvægari.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Úff... ég fékk alveg svona hryllingsbókhlöðuhroll við að lesa um köldu lesstofuna! Skil ekki af hverju þarf alltaf að vera svona kalt á sumum lesstofum (bókhlaðan er (var a.m.k., hef varla komið þar inn síðan í clausus og langar eiginlega ekki til þess) t.d. eins og frystiklefi), maður endar á því að geta ekki hugsað fyrir kulda! Sem betur fer er lesstofan okkar í Ármúlanum yfirleitt ekki svona, en ég er nú samt með flísteppi þar til að vefja utan um mig þegar loftræstingin er sett af stað því að þá er rok þar inni...
Mér finnst samt að það sé allt í lagi að biðja fólkið að hafa þögn á hljóða lessvæðinu og ef þú leggur ekki í að biðja þau um það er bara hægt að klaga í bókavörðinn og biðja hann um það!

17 nóvember, 2007 14:49  
Anonymous Nafnlaus said...

Eyrnatappar virka líka vel!!

19 nóvember, 2007 00:35  
Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu, ertu ekkert að verða búin með þessa bók svo þú getir farið að segja okkur eitthvað skemmtilegt?

29 nóvember, 2007 16:06  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég segi það sama, ertu bara alveg týnd á þessu bókasafni? Passaðu að lesa ekki yfir þig;)

Kv stóra sys

09 desember, 2007 00:59  

Skrifa ummæli

<< Home