fimmtudagur, september 20, 2007

Lunds Kammarkör

Loksins er ég komin í alvöru kór (þið afsakið íslendingakórsmeðlimir...)!
Sótti um í 2 kórum í haust og komst inn í báða sem er góð tilbreyting frá síðustu 2 árum ;)
svo nú syng ég 1. sópran í Lunds Kammarkör... ég hef ekki sungið 1. sópran í 8 ár eða svo og síðustu 2 ár hef ég bara sungið alt!
Ég er búin að mæta á 2 æfingar og líst bara ágætlega á. Ég er samt varla byrjuð að syngja, finnst ég mest bara "raula" kannski sérstaklega þar sem allir hinir sópranarnir (eða svona þeir sem sitja í kringum mig) hafa væntanlega lært söng aðeins lengur en hálft ár :/ Svo kunna þau allt efnið nokkuð vel enda að fara að taka það upp núna um helgina. Ég slepp sem betur fer við það enda á ég ekkert erindi þangað enda ekki einu sinni búin að syngja allt í gegn. Ég er hins vegar að fara að syngja á tónleikum með þeim næsta miðvikudag takk fyrir! Við erum að fara að syngja Sestina eftir Monteverdi. Sungum það í gegn í síðustu viku og ég man að ég gat ekki beðið eftir að við værum búin, s.s. eina verkið sem mér hefur fundiðst leiðinlegt hingað til ;)
Ég komst að því á síðustu æfingu að þau syngja yfirleitt í blandaðri uppsetningu og mikið óskaplega líst mé vel á það :)

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Frábært! Kór er vanabindandi...
og velkomin til baka í tölvuna, ég er í próflestri (já, ég veit að það er september) og ætlast til að finna upplyftingu á bloggsíðum vina minna... :)

20 september, 2007 22:07  
Blogger Sigrún Helga Lund said...

Nusssshhhh!!!! Til hamingju sæta. Þetta er geðveikt :)

21 september, 2007 10:07  
Blogger Guðrún said...

Hrefna: og þau syngja meira að segja í "blandaðri" :)
Þú ferð þó ekki í próf á afmælisdaginn þinn eins og ég ;)... það væri nú kannski full mikið af því góða að fara svo snemma í próf
Sigrún: þokkalega geðveikt :Þ hvenær ætlarðu að heimsækja mig og hvenær ætlarðu að flytja í landið mitt??

23 september, 2007 12:56  
Anonymous Nafnlaus said...

Nei... En ég fer í próf á afmælisdaginn þinn... Ohhh... það er best að vera í "blandaðri" - held að það sé ekki alveg að fara að gerast í mínum kór...

23 september, 2007 15:45  
Anonymous Nafnlaus said...

Velkomin til baka!

24 september, 2007 16:45  
Blogger Guðrún said...

Takk Hildur1
... þú hefur ekki hugsað þér að byrja sjálf að skrifa aftur??

24 september, 2007 17:10  

Skrifa ummæli

<< Home