laugardagur, september 23, 2006

Afmælisboð

Kæru vinir!
Fyrir aðeins nokkrum mínútum ákváðum við skötuhjúin að þið skylduð nú ekki þurfa að missa af afmælum okkar þetta árið! Því ákváðum við að afmælunum skildi fagnað. Í tilefni hás og merkilegs aldurs, ákváðum við að halda dannað kokteilboð með snittum og víni.
Þá er það dagsetningin. Eins og kannski einhverjir vita þá verð ég 25 ára þann 28. september en Jonas verður 33 ára þann 29. september. Mér fannst að sjálfsögðu engin spurning um annað að veislan skyldi haldin á minn afmælisdag þarsem þetta er jú "merkisaldur" á meðan Jonasi fannst 33 einfaldlega flottari tala... "þrír og þrír, þrisvar sinnum ellefu er 33..:"
en þar sem ég er enginn aukvissi í stærðfræði heldur sló ég honum við "fimm sinnum fimm er 25" Hah!
Þannig að afmælið verður haldið á afmælisdaginn minn, fimmtudaginn 28. september kl 19
Hlökkum til að sjá ykkur.

Guðrún og Jonas
Örnvägen 52

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

takk fyrir bodid! eg stefni ad því að koma- læt þig vita;)
knús svafa

23 september, 2006 18:08  
Blogger Guðrún said...

Jibbí! :)
Verðum bara í bandi hvernig þú kemst hingað o.s.frv. mailið mitt er gvudrun(at)gmail.com

23 september, 2006 19:42  

Skrifa ummæli

<< Home