laugardagur, desember 13, 2008

OK

Ef ég skrifa þetta hérna inn neyðsit ég til að standa við það:
Núna ætla ég að taka til og þrífa heima hjá mér. Þegar ég er búin að því ætla ég að taka mynd af fínu jólaljósunum mínum og setja inn á bloggið. Á morgun ætla ég að skrifa jólakort og pakka inn jólagjöfum.
Og hana nú!

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þú verður að senda mynd af innpökkuðum jólagjöfum og jólakortunum á morgun.. annars trúi ég ekki að þú hafir staðið við það;)

kv Hulda Magga

14 desember, 2008 02:00  
Blogger Guðrún said...

Heyrðu góða! Ég pakkaði jólagjöfunum meira að segja inni í gærkvöldi!
...er reyndar ekki aaalveg búin að þrífa en komin langt. Ég klikkaði hins vegar alveg á að taka jólaljósamynd, hún verður að bíða kvöldsins. Úff, jólakortin... ég hef bara ekki fengið neina "inspirasjón" í kortaföndrinu, ég neyðist örugglega til að kaupa bara kort :(

14 desember, 2008 12:52  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég fór í dag og keypti kort... Og fann til kortin sem ég fékk í fyrra (eða mamma gerði það reyndar, þau voru með þeirra kortum). Það er fyrsta skref. Jólakortakveðjur!
Hrefna

15 desember, 2008 00:02  
Blogger Guðrún said...

ég er hætt við að skrifa jólakort! í fyrsta lagi fæ ég bara alls engan innblástur og svo var ég að fatta að ég er að fara heim eftir eina viku og ekki tvær :-0

15 desember, 2008 15:06  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja, þú getur þá strikað það út af listanum þínum, það er allnokkuð ;)
Hrefna

16 desember, 2008 23:18  

Skrifa ummæli

<< Home